13. Aug 2010
Hátíðargestir fá frítt í sund á Sauðárkróki. Sundlaugin á Hofsósi tók sig til og ákvað að hafa sundlaugina sína opna allann sólarhringinn vegna Gærunnar. Sundlaugin á Hofsósi opnaði kl. 09:15 í morgun og verður samfelld opnun til kl 16:00 á sunnudaginn. Sundlaugin á Hofsósi hefur vakið mikla athygli í sumar og var í sumar valin [...]
12. Aug 2010
Von mun halda uppi stuðinu fram á nótt á Mælifelli á föstudagskvöldið. Hátíðargestir fá frían aðgang en miðaverð er 1.500 kr. fyrir aðra. Ballið með Von er í boði Kaffi Króks. Gærugestir fá einnig aflsátt af miðaverði á ballið á laugardaginn með Dalton.
10. Aug 2010
Hljómsveitin Dalton mun leysa Bermuda af á laugardagskvöldið ásamt því að spila á balli á Mælifelli um nóttina. Hinir gríðarhressu Böddi (söngur), Danni (gítar) og gítarhetjan Gunnar Hilmarsson skreyta framhlið hljómsveitarinnar með kraftmikilli og hressri sviðsframkomu. Rythmalímið Kiddi Gallagher (bassi) og Maggi Magg (trommur) steypa hinn gríðar þétta grunn Dalton sem ekkert getur haggað.
9. Aug 2010
Joe Dúbíus og Contalgen Funeral bætast við hóp tónlistarmanna sem munu spila á Gærunni. Þeir eru síðasta hljómsveitin til að bætast við og er listinn nú fullskipaður og er hvorki meira né minna en 22 tónlistaratriði í boði um helgina.
9. Aug 2010
Því miður tvíbókuðu Siggi Bahama og Beatur sig og þar af leiðandi verða þeir ekki á Gærunni. En ekki örvænta. Kynnar hátíðarinnar verða þeir Jóel Sæmundsson og Tryggvi Rafnsson, taktkjaftar eru þeir ekki, en þó með kjaft. Samt ekki of mikinn, bara svona temmilega. Áhugamál þeirra eru tónlist og Subway; ekkert annað. Tveir ungir og [...]